
|
| Vćnum urriđa sleppt |
Í boði er vorveiði í Laxá í Aðaldal. Veitt er á svæðum
Laxárfélagsins, auk Núpa, Hólmavaðs og Ytra-Fjalls og er veitt á 12 stangir
vorið 2010. Tímabilið á svæðum Laxárfélagsins hefst 1. júní og
lýkur 19. júní en á Hólmavaði og Ytra-Fjalli hefst veiði formlega eftir Hvítasunnuhelgina
og lýkur einnig 16. júní.
Boðið er uppá þriggja daga holl. Veiðisvæðin eru:
Veiðileyfið kostar 15.000 kr. pr. stöng á dag með gistingu í Þinghúsinu
við Hraunbæ, fram til 16. júní. Eftir þann tíma þarf að semja sérstaklega
um gistingu, eða að veiðimenn útvegi sér hana sjálfir. Daglegur
veiðitími er 08:00 - 14:00 og 16:00 - 22:00. Hægt er að semja um annan veiðitíma en hann skal
þó aldrei vera lengri en 12 klst. á dag. Allir leyfishafar þurfa að samþykkja breytingar
og þá ber mönnum skylda til að tilkynna veiðieftirlitsmanni um þær. Ekki má
hefja veiðar fyrir kl. 7 að morgni og veiðum skal vera lokið kl 02:00 eftir miðnætti. Þá
er skilyrðislaust bannað að aka um bæjarhlað bænda eftir kl. 22 á kvöldin.
Einungis
er leyfilegt að veiða á flugu og fyrir þá sem þekkja veiðar ofan virkjunar, þá
er um að ræða sömu og svipaðar flugur og aðferðir. Straumflugur og púpur en víða
eru stórir flóar og lygnur sem beinlínis er frábært að veiða á þurrflugu.
Veiði skal stillt í hóf og einungis er leyfilegt að drepa 6 urriða á dag. Ekki má
flytja kvóta milli daga. Þá skal öllum laxi skilyrðislaust sleppt. Talsvert getur verið um niðurgöngulax á vorin og þess vegna var sú ákvörðun
tekin að friða svæðið í kringum Eskeyjarflúð, Dýjaveitur og Haga/Hólmavaðsstíflu.
Þá eru veiðimenn vinsamlegast beðnir að fara með mikilli gát á Breiðeyri en
þar er vitað að niðurgöngulax safnast saman.
Síðastliðið
vor veiddust á svæðunum talsvert á 4 hundrað urriðar en 315 voru færðir til
bókar og vitað er að ekki var allt skráð. Ef tekið er tillit til nýtingar á svæðinu
þá var meðalveiði á stöng pr. dag 2,3 fiskar en veitt var frá 20.05 - 19.06. Stærðin
á urriðanum var frá 35 cm og stærsti urriðinn sem var bókaður mældist 67 cm langur.
Mest veiddist þó af urriða á bilinu 40 - 45 cm.
Straumflugur gáfu
líka best, Rektor, Black ghost og Svartur nobbler, í þessari röð og notuðu menn mest línur
með sökktoppi. Einnig veiddist ágætlega á kúlupúpur s.s. Krók og Drjúg.
Þegar leið á vorið og lofthiti varð meiri, léttu menn veiðarfærin og notuðu
meira flotlínur og stundum þurrflugur.
Hér til hliðar má sjá
hvað er laust af veiðileyfum á svæðinu.
Allar nánari upplýsingar
veittar í tölvupósti adaldalur@gmail.com